03. febrúar 2008 klukkan 13:05
Sælt veri fólkið já þessi síða búin að vera í mikilli jólalægð en nú er boltinn aftur byrjaður að rúlla þannig við ætlum að reyna að endurvekja hana aðeins.
Það helsta sem era ð frétta eru að það eru komnir 2 Ungverjar í liðið frá einu af stærstu félugunum í Ungverjalandi, Pick Szeged, heita þeir Oliver Kiss og Attila Valaczkai og er annar þeirra markmaður en hinn vinstri handar skytta, eru þeir báðir fæddir 1987, semsagt 19 ára og eru löglegir með 2. flokki og er það mjög gott að fá þá í liðið. Einnig er kominn frá Val Ingimar Jónsson. Svo er búið að semja við 25 ára Serba að nafni Slobodan Neskov sem er reyndar ekki kominn til landsins. Svo var það sameiginleg ákvörðun stjórnar og Aleksanders Popovs að rifta samningnum eins og kannski margir vita.
En í dag er leikur og enginn smá stórleikur þar á ferð. Á eftir kemur Akureyri að heimsækja okkur í Varmánna og er þetta algjör 4ra stiga leikur þar sem bæði lið eru í mikilli botnbaráttu. Ákveðið hefur verið að sýna leikinn í sjónvarpinu og er það bara frábært, vonandi að Rúv séu eitthvað að koma til og verðum við þess vegna að mæta og gera allt brjálað á pöllunum.
Vegna þess að þetta er sjónvarpsleikur hefur verið ákveðið að fyrstu hundrað fái frítt inn og einnig fá 16 ára og yngri frítt inn. Þess vegna tilvalinn sunnudags skemmtun að kíkja með fjölskylduna á leikinn. Akureyri eru með sterkt lið sem inniheldur marga reynslubolta innan um unga og efnilega og höfum við tapað einu sinni og gert eitt jafntefli á tímabilinu gegn þeim og nú tilvalið að taka sigurinn. Okkar menn eru búnir að vera spila ágætis bolta en oft vantad herslumuninn og oft tapað leikjum á kannski 10 mínútna köflum. Nú með bættann mannskap er allt opið og er ég bjartsýnn fyrir UMFA-sigri.
Leikurinn hefst 16:00 en gott að mæta tímanlega þar sem að eins og hér að ofan var sagt fá fyrstu 100 frítt inn.
Stuðningsmenn ætla hittast að vanda í vallarhúsinu klukkutíma fyrir leik og gæða sér á pizzu og og fleiru og ná upp stemningu. Allir hardcore aðdáendur mæta á þetta og allir að mæta í RAUÐU og í villimanns hamnum.
Sé ykkur á leiknum
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson
20. desember 2007 klukkan 13:47
Í dag voru valdnir 2 landsliðshópar. Annar mun spila í Svíþjóð og hinn í Noregi. Davíð var valinn í annan landsliðshópinn. Hann á þetta svo skilið, hann er búinn að vera einn besti markmaðurinn í deilidinni í ár. Davíð mun fara til Noregs og spila á móti Noregi, Ungverjalandi og Portugal. Einar Ingi og Ernir Hrafn eru einnig í landsliðinu með Davíð. En þeir spiluðu alla yngri flokkana með Aftureldingu. En við óskum þeim til hamingju og góðs gengis með landsliðinu.
Hrannar Guđmundsson
14. desember 2007 klukkan 19:31
Á þriðjudaginn var tók Afturelding á móti Valsmönnum. Fyrri leik liðanna lyktaði með jafntefli og mátti því búast við hörku leik og reyndist það rétt. Leikurinn byrjaði mjög hratt, mjög hratt tempo frá báðum liðum. Mikið jafnræði var meðal liðanna í byrjun fyrrihálfleiks. Valsarar náðu svo aðeins að síga fram úr undir lokin og fór inn í leikhlé með 2ja marka forustu, 12-14. Spennan var ei síðri í seinnihálf leik þrátt fyrir að það var örlítið skrúfað fyrir hraðann. Jafnt var með liðunum til að byrja með en fór Valur þá að síga hægt og rólega fram úr, þar voru tæknifeilarnir helst að stríða okkur, menn missandi boltann og gefandi slakar sendingar. Öll von virtist úti í stöðunni 18-24 og 11 mínútur eftir, en þá gerðist eitthvað og okkar strákar ekki á því að láta Val hirða öll stigin. Kom þá frábær kafli þar sem við skoruðum 7 mörk gegn 1 marki Vals og endaði leikurinn 25-25 þar sem sleggjan Haukur Sigurvins náði að jafna þegar örfáar sekúndur voru eftir og náði Valur ekki að svara því. Niðurstöðurnar því 1 dýrmætt og svakalega sætt stig í hús. Bestu menn Aftureldingar voru Jói sem var að spila boltanum vel og var að dæla á línuna, Dabbi Á sem var að hirða alla boltana hans Jóa og skoraði 6 mörk þar af mörg á mikilvægum kafla að lokum kom Einar Örn mjög sterkur inn eftir meiðsli og hamraði 7 kvikindi og er mjög gott að fá hann aftur. Davíð varði svo 22 bolta í rammanum. Hjá Val var Ernir fyrrum leikmaður Aftureldingar nánast liðið og skoraði hann 7 mörk. Þetta var mjög dýrmætt stig og skutum við okkur með því yfir Akureyri í 6. sæti og erum þar með 7 stig.
Afsakið að myndirnar frá seinustu leikjum séu ekki komnar inn það er búið að vera eitthvað vesen þær koma stundum gallaðar inn en það eru væntanlegar myndir úr Fram, Hauka og nú Vals leiknum og koma inn við fyrsta tækifæri.
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson
11. desember 2007 klukkan 15:03
Í kvöld fer fram leikur Aftureldingar og Vals að Varmá. Seinasti leikur þessara liða var rosalega spennandi þar sem Afturelding leiddi í hálfleik 11-14. Það gekk svo mikið á í hálfleik að klukkan hrundi og svoleiðis. En í seinni hálfleik héldu okkar leikmenn áfram og unnu frábæran sigur 22-21. Markahæstur hjá Aftureldingu var Hilmar með 5 mörk og Davíð varði 21 skot. Stemmningin í þeim leik var rosaleg þar sem áhorfandi varð fyrir höggi og læti.
Valsmenn misstu Markús Mána fyrir tímabilið sem var roslageur missir fyrir Valsmenn. En í staðinn fengu þeir Sigfús úr Fram. Valur er með rosalega ungt lið. Eiginlega allt byrjunarliðið er skipað 86 landsliðinu. Fannar og Elvar eru búnir að vera rosalega sterkir og Ernir þegar hann hefur verið að spila. En þetta er einmitt fyrsti leikurinn sem Ernir spilar á móti Aftureldingu að Varmá eftir að hann gekk til liðs við Val. Ernir hefur ekki verið að spila mikið upp á síðkasti eftir að hann meiddist á móti Aftureldingu. En sem betur fer fyrir Valsmenn er hann allur að koma til. Valur er í 5.sæti deildarinnar og eru ekki búnir að tapa í 7-8 leikjum í röð í deildinni og unnu ÍBV í seinasta leik með 12 mörkum, 28-40.
Einar Örn leikmaður Aftureldingar spilaði með Val og er að mæta þeim núna í annað skipti. Vonandi verður hann búinn að ná sér af meiðslum sem eru búin að vera að hrjá hann.
En við hvetjum alla til að mæta á leikinn í kvöld klukkan 8. Seinasti leikur Aftureldingar á móti Haukur var ekkert annað en óheppni. En stuðningurinn í vetur er búinn að vera mjög góður og hvetjum við alla til að mæta á leikinn í kvöld og halda stemmningunni áfram. Ekki verður hist fyrir leikinn í kvöld vegna manneklu, en því verður haldið áfram í vetur.
Hér má sjá viðtal sem þeir á Handbolti.is tóku við Bjarka Sigurðsson fyrir leikinn í kvöld http://www.handbolti.is/?p=101&i=14974&offset=3 .Áfram Afturelding
Hrannar Guđmundsson
09. desember 2007 klukkan 00:23
Á föstudaginn var sóttu strákarnir okkar Hauka heim á Ásvelli. Leikurinn var mjög jafn og byrjuðu okkar menn betur og náðu yfir höndinni strax í byrjun. Haukarnir náðu svo að jafna það niður en þá komum við upp aftur og var staðan 11-13 Umfa í vil þegar liðin héldu til leikhlés. Haukarnir komu mjög sterkir til leiks í seinni hálfleik og náðu smátt og smátt yfir höndinni og skiptist á að vera jafnt og að Haukar væru yfir með 1-2. Ríkti mikil spenna á loka korterinu þar sem munurinn flakkaði út um allt. En okkar menn voru ekki alveg nógu stemmdir og voru ekki að nýta dauðafæri sem fengust og niðurstöðurnar því sárt 29-26 tap. Við vorum alveg inni í þessum leik og vantaði aðeins herslu muninn til þess að innbyrgða stig, við getum alveg bitið frá okkur. En maður leiksins var óumdeilanlega Daníel Jónsson sem setti meðal annars 8 kvikindi og stjórnaði sóknarleiknum eins og herforingi.

Danni setti átta mörk í leiknum.
Það er skylda að ná stigum úr næstu tveim leikjum enda heimaleikir og eru þeir gegn Val á þriðjudaginn og svo Stjörnunni á laugardaginn og kemur nánari umfjöllun þegar nær dregur. Eftir þessa leiki er mótið hálfnað og kemur svo hlé fram í Febrúar því nauðsinlegt að fara með sem flest stig inn í það.
Sem stendur erum við í 7. sæti með 6 stig jafnt og Akureyri sem eru í 6. en við eigum hins vegar leik til góða og erum einnig með betri markamun en hins vegar gildir held ég innbyrgðis viðureign og hafa þar Akureyringar betur.
Myndir frá Fram leiknum og frá Hauka leiknum á leiðinni inn einnig er nú hægt að skoða tölfræði í flipanum Leikir/Úrslit/Tölfræði hér að ofan.
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson
28. nóvember 2007 klukkan 10:40
Stuðningsmenn Aftureldingar hafa hug á því að hittast í vallarhúsi fyrir leik svipað og fyrir leikinn gegn Haukum fyrr í vetur. Þar verður boðið upp á flatbökur gegn vægu gjaldi auk þess sem að súpið verður af Heiðrúnarmiði. Húsið verður opið frá klukkan hálf 7 eða einum og hálfum tíma fyrir leik. Ég hvet alla eindregið til þess að mæta bæði á leikinn og í vallarhús fyrir leik. Stuðningur við liðið getur riðið baggamuninn í leikjum, stutt er milli hláturs og gráts í þessum bransa og því ættu stuðningsmenn ekki að láta sitt eftir liggja.
Tekið af afturelding.is
Hrannar Guđmundsson
24. nóvember 2007 klukkan 19:09
Strákarnir töpuðu nú áðan gegn ÍBV út í eyjum, 24-23:
Það voru þó gestirnir sem voru yfir í fyrri hálfleik, 9:13 en smátt og smátt komust Eyjamenn inn í leikinn og unnu að lokum. Nýi leikmaðurinn, Sergey Trotsenko lék sinn fyrsta leik með ÍBV og átti stóran þátt í sigri liðsins
Leikurinn var jafn til að byrja með, Eyjamenn voru yfir 4:3 en þá kom hreint út sagt afleitur kafli hjá ÍBV. Liðið skoraði ekki í einar fjórtán mínútur og Mosfellingar þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að komast sex mörkum yfir, 4:10. En undir lok fyrri hálfleiks hrukku Eyjamenn aftur í gang og náðu að minnka muninn í fjögur mörk. Markvörður Mosfellinga Davíð Sveinsson var Eyjamönnum erfiður en hann varði fjórtán skot í fyrri hálfleik, mörg hver úr opnum færum.
Síðari hálfleiku var svo mjög vel leikinn af hálfu Eyjamanna. Í undanförnum leikjum hafa Eyjamenn tapað leikjum sínum í upphafi síðari hálfleik en nú var annað uppi á teningnum. Eyjamenn komust svo loks yfir um miðjan hálfleikinn, 19:18 og bættu um betur og komust í 23:20. Mosfellingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin, náðu muninum niður í eitt mark en lengra komust þeir ekki og fyrsti sigur ÍBV á þessu tímabili staðreynd.
Markaskorarar ÍBV:
Sergey Trotsenko 8, Zilvinas Grieze 7, Sindri Haraldsson 4, Grétar Eyþórsson 4 og Leifur Jóhannesson 1.
Markaskorar fyrir Aftureldingu voru þeir:
Hilmar Stefánsson 6, Daníel Jónsson 5, Reynir Ingi Árnason 4, Alexandar Popov 3, Magnús Einarsson 2, Ásgeir Jónsson 1, Bjarki Sigurðsson 1 og Jón Andri Helgason 1.
Tekið af hluta af www.eyjafrettir.is (mynd einnig þaðan) (ekki allt)
Tekið úr grein af www.handbolti.is - Smella hér til þess að sjá greinina í heild sinni.
Þetta tap er hreinlega grátlegt og vonandi að strákarnir ná að rífa sig upp fyrir næsta leik liðsins sem er gegn Fram á næsta Fimmtudag hér heima. Þetta er fyrsti heimaleikurinn í næstum einn og hálfan mánuð og hefur löng fjarvera frá Varmá Stadium ekki gert liðinu gott. Fjölmennum á leikinn, nánari upplýsingar(upphitun) kemur þegar nær dregur.
Þá er búið að ákveða tíma fyrir leik Aftureldingar 2 gegn Akureyri í Eimskipsbikarnum og verður sá leikur spilaður að Varmá Sunnudaginn 2. Desember klukkan 16:00.
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson
20. nóvember 2007 klukkan 16:58
Bjarki sig sendi frá sér yfirlýsingu vegna ummæla hans um dómara leiksin í leik HK og Aftureldingar og hljóðar hún svo:
Vegna ummæla minna í Fréttablaðinu um daginn vegna leiks HK og UMFA en þar set ég út á dómara leiksins þá Helga og Sigurjón, og tala þar um að lið mitt UMFA hafi verið tveimur leikmönnum færri nær allan leikinn. Þessi ummæli mín eiga engan rétt á sér og eru sögð í hita leiksins, vil ég því biðja þá félaga velvirðingar á mínum orðum og dreg þau hér með til baka.
Lifi Handboltinn
Virðingarfyllst.
Bjarki Sigurðsson
Þjálfari UMFA
Hrósum við Bjarka fyrir drengskap og dugnað en stöndum samt fast á okkar skoðunum.
Um daginn var dregið í 8-liða úrslit Eimskipsbikarsins og áttum við eitt lið þar, Aftureldingu 2 eða eins og þeir kalla sig Júmboys. Fengu þeir Akureyri til þess að koma í heimsókn í Varmá. Akureyri eru mjög verðugir andstæðingar og verður spennandi að sjá hvernig kempurnar taka á Norðan mönnum. Líklegt er að leikurinn verði spilaður í gömlu gryfjunni þar sem tveir seinustu leikir liðsin í bikarnum hafa spilast en það var þegar þeir unnu úrvalsdeildar lið Íbv 29-27 og Fram 2, 33-31. Í báðum leikjunum hefur myndast góð stemning og er ekki að búast við öðru. Einnig hafa strákarnir verið undir og komið til baka á loka kaflanum í báðum leikjum. Ekki er komin dagsetning á leikinn en mun hún koma hér inn þegar svo verður. Það væri aldeilis flott ef að þeir kæmust í undan úrslit 
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson
16. nóvember 2007 klukkan 19:44
Á síðastliðinn miðvikudag sóttu okkar menn HK’inga heim í Digranesið. Strákarnir komu ekki vel stemmdir til leiks og var sóknarleikurinn hrein hörmung og var það ekki fyrr en eftir 18 mínútur sem Maggi skoraði annað mark okkar en sem betur fer var sókn HK ekki mikið skárri því staðan því aðeins 5-2. Leikurinn var mjög sveiflu kendur, HK komust í 11-4 þegar þrjár mínútur voru eftir af síðari hálf leik en náðu okkar menn að minnka muninn í 11-7 og var staðan þannig í leikhléi. Aftur stungu HK okkur af en við komum til baka og þannig gekk það og það virtist stefna í niðurlægingu þegar þeir komust átta mörkum yfir, 20-12 og aðeins um stundarfjórðungur eftir. En þá allt í einu ákváðu strákarnir að fara spila Handbolta og skoruðu 8 mörk gegn 4 frá HK og voru því lokastöður sárt 4 marka tap, 24-20. Davíð hélt okkur algjörlega í leiknum en markvarslan var frábær hjá báðum liðum og voru báðir markmenn með yfir 20 bolta hvor. Markahæstur var Hilmar Stefánsson með 6 en þar á eftir Magnús Einarsson með 5. Það var einkum sárt að tapa því dómararnir voru með einu orði skelfilegir og hallaði all svakalega á okkur í leiknum, hugsar maður með sér hver staðan hefði orðið ef þeir hefðu verið betri því ekki var munurinn mikill.
Hér vitna ég í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á vísir.is:
Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar, vandaði Helga Hallssyni og Sigurjóni Þórðarsyni, afleitum dómurum leiksins, ekki kveðjuna í leikslok. „Við vorum tveimur færri allan leikinn. Þessi dómarar hafa dæmt illa hjá mér áður í vetur en þetta var þeirra langversti leikur. Við áttum ekki góðan leik frekar en HK en við fengum ekkert hjá dómurunum," sagði Bjarki eftir leik.
Smellið hér til að lesa alla greinina.
Hér er Hilmar að reyna að brjótast í gegnum sterka vörn HK, en hann skoraði 6 mörk í þessum leik.
Afturelding stendur í stað í 6. sæti og verður spennandi að sjá hvernig fer í leik Fram og Akureyrar á Sunnudag en Akureyri þurfa að tapa til að við missum þá ekki yfir okkur eða upp að okkur.
Næsti leikur er gegn Íbv í Eyjum þann 24. nóv.
Næsti heimaleikur er gegn Fram þann 29. nóvember og viljum við sjá alla á völlinn þá !!
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson
14. nóvember 2007 klukkan 17:03
HK LEIKNUM SEINKAÐ TIL 20:00
Akureyri umfjöllun:
Það var föngulegur hópurinn sem tók af stað norður til þess að mæta liði Akureyrar. Það var aldeilis stæll á liðinu því það var bara tekið flugið. Svo þegar við lentum biðu okkar Taxar sem fóru með okkur á Greifann að nærast. Þaðan lá leiðinni með Töxum upp í KA heimilið en þegar þangað var komið tóku leikmenn göngutúr til þess að fá blóðið á hreyfingu meðan fylgdarliðið horfði á Gróttu vinna kvennalið Akureyrar.
Í leiknum sjálfum mættust stál í stál og sýndu bæði lið sterkann varnarleik. Akureyri náði þó forskoti og var staðan 5-2 eftir um 14 mínútur og tók þá Bjarki leikhlé. Orð hans hafa eitthvað komist til skila því þegar 20 mínútur voru liðnar höfðu okkar menn jafnað leikinn 6-6 en Akureyri leiddi þó í hálfleik með einu marki 13-12. Í seinni hálfleik var sama sagan, þeir skora og við jöfnum einstaka sinnum komust þeir 2 yfir en við náðum alltaf að jafna. Þegar tæpar 2 mínútur voru eftir misstu heimamenn mann útaf og voru því einum færri það sem eftir lifði af leiknum. Það var svo Hilmar sem kom okkar mönnum yfir 26-25 þegar 1 og hálf mínúta var eftir. En hinu megin jafnaði Magnús Stef. með sirkus marki. Þá héldum við í sókn og Jói braut sig í gegn en klúðraði en Jón Andri náði boltanum í teignum en brotið á honum en þó aðeins dæmt auka kast. Jón Andri fór svo inn úr sömu sókn og skoraði en dæmdi dómarinn línu. Loka niðurstöður voru því 26-26. Sóknaleikur Akureyrar var ekki upp á marga fiska en var Magnús Stef. Að halda henni uppi með 9 mörk. Varna leikur beggja liða var mjög góður og hjá okkur var Dabbi að verja mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik, sennilega einn besti maður leiksins. Hjá okkur voru atkvæða mestir Hilmar með 7 og þess má geta að hann skoraði úr öllum vítunum, Danni með 6 og Maggi með 5.
HK upphitun
En núna í kvöld er leikur á móti HK í Digranesi. Leikurinn hefst klukkan 19:15. HK eru með fínt lið og eru þeir í 1. sæti með 11 stig ásamt Haukum, Fram og Stjörnunni. Við erum í 6 sæti með 6 stig eftir 8 leiki, en tapi Valur gegn Haukum og við vinnum í kvöld þá kæmumst við uppí 5 sæti, þó leik á undan Val. HK höfðu betur í seinustu viðureign liðanna og unnu 24-28 á Varmá. Okkar menn voru þá ekki alveg vaknaðir í deildinni og eigum við því raunhæfa möguleika á að landa sigri í kvöld.
Við hvetjum alla að gera sér ferð í Kópavoginn og hvetja sitt lið. ÁFRAM AFTURELDING!
P.S. Fullt af nýjum myndum komnar úr öllum leikjum. Einnig er búið að búa til Gestanotanda á spjallið sem þeir sem nenna/vilja/kunna ekki að nýskrá sig geta notað og er Notendanafn: Gestur Lykilorð: Gestur , samt sem áður hvet ég alla að skrá sig og vera virk, endilega virkja þetta spjall.
Þorvaldur Einarsson
Ţorvaldur Einarsson